Úrtak hans sem tónlistarmanns hefur iðulega verið nokkuð nýbylgjuskotið popp/rokk og ég bjóst því við að heyra bara lög með Pavement í hálftíma … en allt kom fyrir ekki. iPodinn hans var stútfullur af 80’s poppi og íslenskum popplögum. Bubbi kom þrisvar og Sálin tvisvar. Efast um að síðarnefnda sveitin hafi nokkurn tímann áður verið spiluð á X-inu…
Hann var mikill viskubrunnur og gat gefið hlustendum ítarlegar upplýsingar um allt það sem fékk að óma…
afar skemmtilegt atvik átti sér svo stað þegar iPodinn hans laug. Samkvæmt skjánum átti hann að vera spila Keyrum yfir Ísland með Sprengjuhöllinni en var í raun að spila Mannakorn. Mjööög áhugavert… hraðlygið vasadiskó þar á ferð.
Hér er lagalistinn sem vasadiskóið hans Jón Þórs ældi úr sér:
prefab sprout - when love breaks down
bubbi - sagan endurtekur sigsálin hans jóns míns - ef ég ætti…
mannakorn - gamli góði vinur
sprengjuhöllin - keyrum yfir ísland
retro stefson - fjallatenór
egó - fjöllin hafa vakað
bjartmar - velkomin í bísann
ben kweller - hurtin’ you
yo la tengo - dreams
the vaccines - a lack of understanding
yo la tengo - shaker
svo spilaði ég lagið Hjartastingur af nýju EP plötunni hans.