Veiði

Fiskstofnar Þjórsár og göngur þeirra

Magnús við rafveiði í Þjórsá.
Magnús við rafveiði í Þjórsá.
Magnús Jóhannsson,  fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnun, flutti á dögunum erindi á vegum Hins íslenska náttúrufræðifélags um Fiskstofna Þjórsár og göngur þeirra.

Ágrip af erindi Magnúsar:

„Þjórsá er annað vatnsmesta vatnsfall landsins á eftir Ölfusá.  Í Þjórsá lifa allar þær fisktegundir sem algengar eru í fersku vatni á Íslandi, þ.e. lax, urriði, bleikja, hornsíli og áll. Lax og urriði eru ríkjandi tegundir laxfiska í Þjórsá.

Í Þjórsá ásamt þverám hennar er að finna einn af stærri laxastofnum landsins og talsverður stofn sjóbirtings gengur á vatnasvæðið. Þar eru einnig staðbundin bleikja og urriði. Samkvæmt mati á stærð og gæðum búsvæða fyrir lax á fiskgegnum svæðum á vatnasvæði Þjórsár er mestur hluti náttúrulegra laxa sem gengur á vatnasvæðið alinn upp í Þjórsá sjálfri.

Miklar nytjar eru af veiði í Þjórsá en þar er einkum stunduð netaveiði. Í erindinu verður farið yfir lífssögu laxfiska í Þjórsá með sérstakri áherslu á lax og sjóbirting og göngur þeirra milli ferskvatns og sjávar."

Magnús Jóhannsson er fæddur árið 1954. Hann lauk BS. prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1978 og cand scient prófi í vatnalíffræði, sérsvið; vistfræði vatnafiska, við Óslóarháskóla árið 1984. Magnús hefur starfað sem sérfræðingur hjá Veiðimálastofnun frá árinu 1986.

Sjá nánar á vef HÍN (http://www.hin.is/)

Frétt af veidimal.is.






×