Frábær hringur hja Ólafi Birni - á tveimur undir pari Kolbeinn Tumi Daðasno skrifar 18. ágúst 2011 17:48 Ólafur Björn var í banastuði í Greensboro í dag. Mynd/Golfsamband Íslands
Ólafur Björn Loftsson fór á kostum á fyrsta degi Wyndham PGA-mótsins í dag. Ólafur fór hringinn á Sedgefield-vellinum á tveimur höggum undir pari. Ólafur Björn hóf leik á 10. holu rétt fyrir klukkan eitt í dag. Ólafur spilaði 10. holuna á skramba eða tveimur höggum yfir pari. Óhætt er að segja að fall hafi verið fararheill því Ólafur fór á kostum það sem eftir lifði dags. Að loknum fyrri níu var Ólafur Björn á einu höggi undir pari. Auk skrambans fékk hann þrjá fugla og fimm pör. Leikur Ólafs var ekki síðri á seinni níu holunum þar sem hann fékk átta pör og einn fugl. Ólafur Björn deilir sem stendur 21. sæti með 19 öðrum keppendum en 156 keppendur taka þátt í mótinu. Ekki hafa allir kylfingar lokið leik en John Daly og Padraig Harrington eru meðal manna sem áttu ekkert í Ólaf Björn í dag. Ólafur var í ráshóp með Billy Horschel frá Bandaríkjunum og Cameron Percy frá Ástralíu. Óhætt er að segja að ráshópurinn hafi verið sjóðandi heitur. Horschel spilaði á þremur höggum undir og Percy á tveimur undir líkt og Ólafur. Um sjötíu kylfingar komast í gegnum niðurskurðinn að loknum hring morgundagsins. Ólafur Björn á góðan möguleika á að komast í gegnum niðurskurðinn spili hann sambærilegt golf og í dag. Enn á meirhluti keppenda eftir að ljúka leik og fróðlegt verður að sjá í hvaða sæti Ólafur Björn verður að deginum loknum. Fylgjast má með gangi mála hér.
Golf Tengdar fréttir Ólafur Björn á tveimur undir eftir sextán holur Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, stendur sig vel á PGA-mótinu á Sedgefield-vellinum í Norður-Karólínu. Hann hefur nú lokið sextán holum á fyrsta hring og er á tveimur höggum undir pari. 18. ágúst 2011 16:53 Ólafur með þrjá fugla á fyrstu sjö holunum Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, virðist kominn í stuð á Wyndham PGA-mótinu. Ólafur Björn fékk skramba á fyrstu holu en hefur síðan þá fengið þrjá fugla og parað þrjár holur. 18. ágúst 2011 14:58 Ólafur Björn má ekki taka við verðlaunafénu Áhugamaður hefur ekki sigrað á PGA-mótaröðinni í tvo áratugi. Phil Mickelson var sá síðasti sem afrekaði það, árið 1991. Ólafur Björn Loftsson getur ekki tekið við hundrað milljónum ef hann sigrar á PGA-mótinu í Norður-Karólínu. 18. ágúst 2011 12:00 Mest lesið Kjartan Atli lætur af störfum Körfubolti Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Fótbolti „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Golf Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Enski boltinn Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Körfubolti Kærasta Haaland hefur fengið nóg Enski boltinn Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn Fleiri fréttir Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Ástand í Noregi: Hátt upp í fimm þúsund kylfingar án klúbbs Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira
Ólafur Björn á tveimur undir eftir sextán holur Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, stendur sig vel á PGA-mótinu á Sedgefield-vellinum í Norður-Karólínu. Hann hefur nú lokið sextán holum á fyrsta hring og er á tveimur höggum undir pari. 18. ágúst 2011 16:53
Ólafur með þrjá fugla á fyrstu sjö holunum Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, virðist kominn í stuð á Wyndham PGA-mótinu. Ólafur Björn fékk skramba á fyrstu holu en hefur síðan þá fengið þrjá fugla og parað þrjár holur. 18. ágúst 2011 14:58
Ólafur Björn má ekki taka við verðlaunafénu Áhugamaður hefur ekki sigrað á PGA-mótaröðinni í tvo áratugi. Phil Mickelson var sá síðasti sem afrekaði það, árið 1991. Ólafur Björn Loftsson getur ekki tekið við hundrað milljónum ef hann sigrar á PGA-mótinu í Norður-Karólínu. 18. ágúst 2011 12:00