Tíska og hönnun

Nýtt íslenskt matarstell frá Aurum

Stellið er fáanlegt með tveimur mynstrum. Fréttablaðið/Stefán
Stellið er fáanlegt með tveimur mynstrum. Fréttablaðið/Stefán
Guðbjörg Ingvarsdóttir, skartgripahönnuður Aurum, hefur hannað fallegt matarstell í samstarfi við finnska hönnunarteymið Elinno. Stellið er framleitt úr hágæða postulíni og er þar af leiðandi sterkara og endingarbetra en venjulegt postulín.

„Ég leitaði samstarfs við Elinno á sínum tíma þar sem ég sá ákveðna samlíkingu með verkum okkar. Postulínið heillaði mig þar sem hægt er að vinna það þynnra en það heldur samt styrkleika sínum og verður fínlegra.

Innblásturinn að mynstrinu kemur frá tveimur skartgripalínum mínum, Heklu og Dögg, og einfaldleiki mynstranna gerir það að verkum að auðvelt er að blanda settunum saman og nota þau við ýmis tækifæri," útskýrir Guðbjörg.

Guðbjörg Ingvarsdóttir skartgripahönnuður.
Hún segir að vörurnar eigi að geta átt sér langa ævi og gengið kynslóða á milli. Viðtökurnar eru enda góðar og seldist nokkuð af stellunum fyrir jól.

„Viðtökurnar hafa verið virkilega góðar. Ég varð vör við að fólk var að kaupa hluta úr borðbúnaðinum fyrir jól með það í huga að halda áfram að bæta í stellið með árunum."

Að svo stöddu fæst matarstellið aðeins í Aurum en Guðbjörg útilokar ekki að vörurnar verði einnig fáanlegar erlendis innan skamms.- sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×