Handbolti

Tveggja marka sigur á Eistlandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ísland vann í kvöld sigur á Eistlandi, 31-29, í undankeppni HM í handbolta í flokki U-21 landsliða.

Staðan í hálfleik var 15-14, Eistlendingum í vil en Íslendingar gerðu vel og sóttu sigurinn í síðari hálfleik.

Ísland hefur nú unnið báða leiki sína til þessa í sínum undanriðli en leikið er í Serbíu.

Heimamenn hafa einnig unnið sína báða leiki og mætast því Ísland og Serbía í hreinum úrslitaleik á morgun um hvort liðið komist á HM.

Mörk Íslands: Róbert Aron Hostert 5, Guðmundur Árni Ólafsson 5, Ragnar Jóhannsson 5, Ólafur Guðmundsson 4, Heimir Óli Heimisson 3, Guðmundur Hólmar Helgason 2, Vignir Stefánsson 2, Bjarki Már Elísson 2, Tjörvi Þorgeirsson 2 og Stefán Rafn Sigurmannsson 1.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×