Lífið

Afþakkaði stefnumót

Ashton Kutcher upplýsti að Jennifer Aniston hefði eitt sinn verið draumastúlkan hans. Nordicphotos/Getty
Ashton Kutcher upplýsti að Jennifer Aniston hefði eitt sinn verið draumastúlkan hans. Nordicphotos/Getty
Ashton Kutcher upplýsti nýverið að draumastúlka hans hefði eitt sinn verið Jennifer Aniston.

„Ég var mjög hrifinn af henni og sór að ég ætti eftir að fara með henni á stefnumót einn daginn. Vinur minn ákvað að breyta þessu í veðmál en það voru engin tímamörk þannig ég get ennþá unnið þetta veðmál," sagði Kutcher, sem bauð Aniston á stefnumót þegar hún var enn gift Brad Pitt.

„Hún afþakkaði boðið. Ekki er þó öll von úti, nú er þetta bara spurning um að sannfæra eiginkonuna um að hleypa mér á stefnumót með annarri konu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×