Lífið

Alltaf varkár í ástarmálum

varkár Reese Witherspoon er varkár þegar kemur að ástarsamböndum.
varkár Reese Witherspoon er varkár þegar kemur að ástarsamböndum.
Reese Witherspoon stígur varlega til jarðar þegar kemur að ástarsamböndum. Leikkonan er trúlofuð umboðsmanninum Jim Toth og undirbúningur fyrir brúðkaupið er í fullum gangi.

Hún lenti í mörgum misheppnuðum ástarsamböndum áður en hún kynntist Toth og viðurkennir að það taki tíma fyrir sig að líða vel með karlmanni.

Oftast leitar hún ráða hjá vinum sínum ef hún er óviss í ástarmálum.

„Ég er mjög varkár og þess vegna hlusta ég á vini mína. Þeir vita betur en ég hvort ég er hamingjusöm. Þeir segja mér strax hvort karlmaður hentar mér vel og hvort ég sé að gera rétt,“ sagði hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×