Lífið

Leikur kærustu Ofurmennisins

hin nýja Lois Lane Leikkonan Amy Adams hefur fengið hlutverk sem kærasta Súpermans í nýjustu myndinni um kappann. Nordicphotos/getty
hin nýja Lois Lane Leikkonan Amy Adams hefur fengið hlutverk sem kærasta Súpermans í nýjustu myndinni um kappann. Nordicphotos/getty
Leikkonan Amy Adams hefur hreppt hlutverk kærustu Súpermans í nýrri mynd um ofurhetjuna.

Aðdáendur hafa beðið spenntir eftir að leikakonuvalið yrði opinberað enda hlutverk Lois Lane viðamikið í sögunni um Súperman. Adams þurfti að etja kappi við þekktar leikkonur á borð við Mila Kunis og Kristina Anapau í prufum fyrir hlutverkið en vandræðagemlingurinn Lindsay Lohan var líka orðuð við það á sínum tíma.

Reiknað er með því að myndin verði frumsýnd jólin 2012 og er það breski leikarinn Henry Cavill sem leikur ofurhetjuna en bæði Kevin Costner og Diane Lane eru á leikaralistanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×