Lífið

Framhaldsskólanemar flykkjast norður

„Það er komin rosaleg spenna í mannskapinn hér á Akureyri," segir Óli Dagur Valtýsson, formaður skólafélags Menntaskólans á Akureyri.

Hinn 9. apríl fer Söngkeppni framhaldsskólanna fram á Akureyri. Forsvarsmenn keppninnar reikna með því að gríðarlegur fjöldi framhaldsskólanema haldi norður til að hvetja sinn skóla og því ljóst að bærinn verður fullur af lífi.

„Það verður allt að gerast á Akureyri þessa helgi," segir Tindur Óli Jensson, verkefnastjóri AM Events, en fyrirtækið skipuleggur söngkeppnina. Tindur segir að um 2000 nemendur fari á sjálfa söngkeppnina, en að þessa sömu helgi fari einnig fram snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK Extreme og því verði enn þá meira um að vera norðan heiða. Margir af bestu tónlistarmönnum landsins verða í Akureyrarbæ umrædda helgi.

„Við hjá AM Events verðum með áfengislaust ball fyrir 16 ára og eldri, en þar spila Agent Fresco, Danni Deluxe og Skítamórall," segir Tindur. Á Græna hattinum verður heljarinnar tónleikadagskrá á vegum AK Extreme og eins koma tónlistarmennirnir Blaz Roca og Friðrik Dór fram í Sjallanum á föstudagskvöldinu.

Það verður hins vegar ekki auðvelt að fá gistingu í bænum þessa helgi, en rúmur mánuður er síðan öll gistiheimili og hótel voru fullbókuð.

„Þetta er í fyrsta skipti í þau fimm ár sem við höfum séð um keppnina, að hvert einasta gistipláss á Akureyri er uppbókað. Við vorum meira að segja í vandræðum með að redda gistingu fyrir starfsmennina okkar," segir Tindur í léttum dúr. Þeir sem ekki fara norður til að fylgjast með söngkeppninni þurfa ekki að örvænta, því keppnin verður í beinni útsendingu og í opinni dagskrá á Stöð 2 og einnig í beinni útsendingu hér á Vísi.

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá keppnina í fyrra í heild sinni en einnig má horfa á hana á Vísir Sjónvarp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×