Lífið

Lady Gaga verður dálkahöfundur

Í blaðabransann Poppdívan Lady Gaga getur nú bætt starfsheitinu dálkahöfundur á ferilskrána en frumraun hennar á því sviði kemur út 12. maí í tímaritinu V.
Nordicphotos/getty
Í blaðabransann Poppdívan Lady Gaga getur nú bætt starfsheitinu dálkahöfundur á ferilskrána en frumraun hennar á því sviði kemur út 12. maí í tímaritinu V. Nordicphotos/getty
Söngkonan Lady Gaga er greinilega fær í flestan sjó en hún gerðist nýverið dálkahöfundur hjá tímaritinu V.

Ekki er vitað hvað poppdívan ætlar að skrifa um en búist er við að það veki eftirtekt eins og allt sem hún tekur sér fyrir hendur. Líklegt þykir að Gaga skrifi um tísku en hún hefur verið mikill frumkvöðull í tískuheiminum undanfarið og er því trúverðugur dálkahöfundur á því sviði.

Fyrsti pistilinn hennar kemur í sumarútgáfu blaðsins sem væntanleg er í verslanir 12. maí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×