Lífið

Fegðin aftur með tónleika

feðgin Lára Rúnars og Rúnar Þórisson halda tónleika í kvöld.
feðgin Lára Rúnars og Rúnar Þórisson halda tónleika í kvöld.
Feðginin Lára Rúnars og Rúnar Þórisson halda tónleika á Faktorý í kvöld. Í nóvember spiluðu þau saman á Fuglabúrstónleikum en í þetta sinn stíga þau á svið í sitt hvoru lagi.

„Það gekk rosavel. Við tókum gömul Grafíkurlög og svolítið meira en núna er ég að hita upp fyrir pabba,“ segir Lára, sem er að undirbúa sína fjórðu plötu. Rúnar, sem er fyrrverandi liðsmaður Grafíkur, hefur gefið út tvær sólóplötur og unnið við ýmis tónlistarverkefni.

Aðgangseyrir á tónleikana í kvöld er 1.000 krónur og hefjast þeir klukkan 22.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×