Lífið

Helga Braga útskrifuð flugfreyja

Flýgur um loftin blá Helga Braga Jónsdóttir flaug í gegnum flugfreyjuskóla Iceland Express. Hún segir starfið henta sér vel, sígauninn sem hún sé.
fréttablaðið/Anton
Flýgur um loftin blá Helga Braga Jónsdóttir flaug í gegnum flugfreyjuskóla Iceland Express. Hún segir starfið henta sér vel, sígauninn sem hún sé. fréttablaðið/Anton
Iceland Express getur væntanlega státað af fyndnasta flugfreyjuhópi landsins því á mánudag útskrifaðist Helga Braga Jónsdóttir úr flugfreyjuskóla flugfélagsins. Helga Braga mun hitta fyrir Eddu Björgvinsdóttur, sem kláraði skólann í fyrra. „Eða eins og einhver sagði við mig: Edda og Helga Braga? Hvenær byrjar eiginlega Laddi?“ segir Helga í samtali við Fréttablaðið.

Liðlega 1.500 umsóknir bárust um flugfreyjustörfin en sá hópur var skorinn rækilega niður og aðeins 33 útskrifuðust á mánudaginn. Helga segist alltaf hafa verið tengd ferðaþjónustubransanum, hún hafi unnið á ferðaskrifstofu sjö sumur og svo sé hún mikill sígauni í sér.

„Ég sá í fyrra að Iceland Express var að leita eftir starfskröftum en svo breyttust plönin hjá mér og ég benti Eddu á að sækja um. Og hún fékk,“ segir Helga. Síðan hafi þær stöllur hist og Edda talað um hvað þetta væri svo ógeðslega gaman.

„Og þegar ég sá auglýsingu kom ekkert annað til greina en að láta slag standa.“

Flugfreyjuskólinn er síður en svo auðveldur, þetta er fimm vikna kúrs, kennt alla daga vikunnar.

„Og þar sem Iceland Express er með flugvélar frá Astraeus þurftum að við að kunna á vélarnar þeirra. Þetta voru alveg rosalega strembin próf, mikill utanbókarlærdómur þar sem sjónminnið kom sér vel.“ - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×