Lífið

Rachel er tvíkynhneigð

Breytist í herramann Leikkonan Evan Rachel Wood setur kyn ekki fyrir sig og heillast jafnt af konum sem körlum.nordicphotos/getty
Breytist í herramann Leikkonan Evan Rachel Wood setur kyn ekki fyrir sig og heillast jafnt af konum sem körlum.nordicphotos/getty
Leikkonan Evan Rachel Wood viðurkennir í viðtali við tímaritið Esquire að hún girnist karla jafnt sem konur. Wood, sem var í löngu sambandi með rokkaranum Marilyn Manson, segist ekki setja kyn fyrir sig þegar hún leitar sér að maka.

„Stelpur eða strákar, það skiptir ekki máli og ég er frekar upptekin af kynleysi ef út í það er farið. Þegar ég er með stelpum breytist ég hins vegar í herramann sem opnar dyr og borgar reikninginn,“ segir leikkonan, sem síðast lék í sjónvarpsþáttaröðinni True Blood.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×