Lífið

Kærastinn ekki ákærður

kærastinn slapp Kærasti Christinu Aguilera slapp við ákæru fyrir ölvunarakstur.
kærastinn slapp Kærasti Christinu Aguilera slapp við ákæru fyrir ölvunarakstur.
Matthew Rutler, hinn 25 ára kærasti söngkonunnar Christinu Aguilera, hefur sloppið við ákæru fyrir ölvunarakstur.

Hann var handtekinn 1. mars grunaður um ölvun við akstur. Vegna skorts á sönnunargögnum sleppur hann við ákæru. Hin þrítuga Aguilera var einnig handtekin þetta sama kvöld fyrir að vera ölvuð á almannafæri.

Stutt er síðan söngkonan skildi við eiginmann sinn Jordan Bratman. Saman eiga þau drenginn Max sem er þriggja ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×