Lífið

Benedikt landar Baltasar og Bonnevie

leikur fyrir benedikt
Maria Bonnevie leikur í nýrri hrossamynd Benedikts Erlingssonar. Baltasar Kormákur mun leika spænskan túrista í myndinni.
nordicphotos/getty
leikur fyrir benedikt Maria Bonnevie leikur í nýrri hrossamynd Benedikts Erlingssonar. Baltasar Kormákur mun leika spænskan túrista í myndinni. nordicphotos/getty
Leikkonan Maria Bonnevie og Baltasar Kormákur hafa samþykkt að leika í fyrstu kvikmynd Benedikts Erlingssonar sem gengur undir vinnuheitinu Hross um oss. Margir muna eftir Bonnevie, sem er fædd í Svíþjóð, úr myndinni Hvíti víkingurinn eftir Hrafn Gunnlaugsson en þá var hún 22 ára.

"Hún beit bara strax á agnið en hún þarf örugglega að æfa sig. Mér skilst samt að hún sé mjög reiðfær," segir Benedikt, spurður hvernig hafi gengið að fá Bonnevie um borð.

"Baltasar fær hlutverkið út á útlitið," bætir hann við í léttum dúr. "Hann á að leika spænskan túrista sem kann ekkert á hesta." Hilmir Snær Guðnason og Steinn Ármann Magnússon hafa einnig bæst við leikaraliðið, sem áður samanstóð af þeim Ingvari E. Sigurðssyni og Charlotte Bøving, eiginkonu Benedikts.

Myndin er "brútal" sveitarómantík að sögn Benedikts þar sem sagðar eru dramatískar sögur af hestafólki. Hann er þessa dagana staddur á kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem hann vinnur í því að fjármagna myndina. Kvikmyndasjóður Íslands hefur þegar ákveðið að styrkja hana auk þess sem norskir framleiðendur koma að henni.

"Maður er að kasta flugum fyrir stórlaxa og þeir eru að narta í," segir hann. Einnig kemur til greina að íslenskir aðilar með ástríðu fyrir hestamennsku taki þátt í framleiðslunni.

Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu kostar myndin tvö hundruð milljónir króna í framleiðslu og eiga tökur að hefjast 1. ágúst. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×