Lífið

Perry tekur sér frí

Ætlar að vera edrú Matthew Perry hyggst taka sér frí frá skemmtanabransanum til að halda sér edrú.
Ætlar að vera edrú Matthew Perry hyggst taka sér frí frá skemmtanabransanum til að halda sér edrú.
Matthew Perry, best þekktur fyrir leik sinn í gamanþáttaröðinni Friends, hefur ákveðið að taka sér frí frá skemmtanaiðnaðinum til að ná betri tökum á edrúmennsku sinni. Perry hefur lengi átt í erfiðleikum með áfengis- og verkjalyfjafíkn sína og fór meðal annars tvívegis í meðferð á meðan á velgengni Friends stóð.

Fjölmiðlar í Bandaríkjunum telja reyndar margir hverjir að þetta sjálfskipaða frí komi ekki til af góðu. Nýjasta gamanþáttaröð Perry, Mr.Sunshine, hefur fengið skelfilega dóma vestanhafs og lítið áhorf og búast raunar flestir við því að þættirnir verði slegnir af. Perry hefur því ekki enn náð að finna sig eftir að Friends-þættirnir runnu sitt skeið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×