Lífið

Ferrell í spænskri mynd

Ameríka/Mexíkó Will Ferrell leikur aðalhlutverkið í spænskri kvikmynd sem fjallar um samskipti Mexíkós og Bandaríkjanna.
Ameríka/Mexíkó Will Ferrell leikur aðalhlutverkið í spænskri kvikmynd sem fjallar um samskipti Mexíkós og Bandaríkjanna.
Will Ferrell segir að spænska myndin Casa de mi Padre, sem hann leikur í á móti Gael Garcia Bernal og Diego Luna, sé blanda af Tarantino-stílnum og Robert Rodrigues-kvikmyndum.

Myndin á að líta út fyrir að vera mjög illa gerð og má stundum sjá bregða fyrir hljóðmanni eða hljóðnema í sumum senum. Ferrell vonast þó til að fólk sjái æðri tilgang myndarinar.

„Hún fjallar um þessi sérstöku samskipti Mexíkós og Bandaríkjanna. Við tökum á því og reynum að kryfja þau til mergjar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×