Lífið

Er orðinn of gamall

Ekkert smeykur
Jude Law kveðst ekkert vera smeykur við ellikerlingu, hún bjóði bara upp á fleiri valmöguleika.
Ekkert smeykur Jude Law kveðst ekkert vera smeykur við ellikerlingu, hún bjóði bara upp á fleiri valmöguleika.
Breski leikarinn Jude Law kveðst vera orðinn of gamall til að leika hjartaknúsara á hvíta tjaldinu. Hinn 38 ára gamli Law leikur svikinn eiginmann á móti Keiru Knightley í Önnu Kareninu sem sýnd er á kvikmyndahátíðinni í Cannes um þessar mundir.

Law lét þessi orð falla í samtali við blaðamann Daily Mail en leikarinn hefur hingað til verið eitt helsta kyntákn kvikmyndanna.

En leikarinn er ekki að láta þetta fara í taugarnar á sér, hann segist njóta þess að kvikmyndahúsagestir einblíni ekki eingöngu á útlit hans heldur horfi núna á frammistöðu hans. „Fólk var alltaf að horfa á hvernig ég leit út. Það var mjög erfitt á sínum tíma. Núna einbeiti ég mér aðallega að því að verða viðurkenndur sem leikari.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×