Rykið dustað af góðu tímabili 21. júní 2011 06:00 super 8 Þrælgott formúlufjör sem sækir innblástur til níunda áratugarins.
Kvikmyndir Super 8 Leikstjóri: J.J. Abrams Leikarar: Joel Courtney, Kyle Chandler og Elle Fanning. Árið er 1979 og hinn þrettán ára gamli Joe Lamb, sem missti móður sína fyrir skemmstu, vinnur að gerð kvikmyndar ásamt nokkrum félögum sínum. Þótt þeir séu ekki háir í loftinu er metnaðurinn í hæstu hæðum og takmarkið er að fá myndina sýnda á kvikmyndahátíð sem nálgast óðfluga. Við upptökur eins atriðanna verða krakkarnir vitni að hrikalegu lestarslysi, og litla kvikmyndatökuvélin þeirra rúllar allan tímann. Áður en langt um líður eru krakkarnir staddir í hringiðu samsæris og yfirhylmingar. Eitthvað dularfullt virðist hafa verið um borð í lestinni, og flughernum er mikið í mun að almenningur komist ekki að því hvað það var. Best er að tíunda söguþráðinn ekki frekar. Super 8 sækir innblástur í fjölskyldu- og ævintýramyndir níunda áratugarins. Krakkarnir þjóta um á reiðhjólum og í þeirra augum er heimur fullorðinna fjarlægur og óspennandi. Persónurnar eru að vísu sniðnar eftir gamalli uppskrift en sú uppskrift er sígild og leikhópurinn ungi stendur sig með miklum sóma. Í raun má segja að myndin öll sé vel hlaðin klisjum en flestar klisjurnar hér er auðvelt að líka við. Frásagnargleði Abrams er það sem heillar mest. Hann fer troðnar slóðir, fetar í fótspor mynda á borð við E.T., The Goonies og Stand by Me, en allar þessar myndir eru góðir minnisvarðar um skemmtilegt tímabil í sögu Hollywood sem er löngu liðið. Það er gaman að heimsækja þetta tímabil aftur og Super 8 má líkja við fantagóða ábreiðuhljómsveit sem spilar gamla slagara af ástríðu og natni. Og að sjálfsögðu í búningum til að fanga tíðarandann. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Þrælgott formúlufjör að hætti níunda. áratugarins. Og formúlan virkar enn.
Lífið Mest lesið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Fleiri fréttir Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira