Lífið

Bæ bæ viskí - halló hor og barnakúkur

Pink er hamingjusöm í nýja hlutverki sínu sem móðir.
Pink er hamingjusöm í nýja hlutverki sínu sem móðir. MYNDIR/Cover Media
Söngkonan Pink og eiginmaður hennar, mótorkross-kappinn Carey Hart, eignuðust dótturina Willow Sage fyrir rúmum hálfum mánuði. Söngkonan segist ánægð með lífið en viðurkennir að hún saknar þess að fá sér viskídreytil.

„Líf mitt samanstóð eitt sinn af viskí, tárum og sígarettum. Nú er það hor, tár og barnakúkur, þvílík hamingja," ritaði söngkonan á Twitter síðu sinni og bætti svo við stuttu síðar: „Ég sakna þó viskísins."

Fjölskyldunni, sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni, heilsast þó vel og nýverið sagðist Hart sjaldan hafa verið hamingjusamari.

Komdu með okkur í bíó!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×