Lífið

Vinsæll veitingastaður Hrefnu

Hrefna Rósa Sætran, matreiðslumaður, grillmarkaðurinn, fiskmarkaðurinn
Hrefna Rósa Sætran, matreiðslumaður, grillmarkaðurinn, fiskmarkaðurinn
Matreiðslumaðurinn Hrefna Rósa Sætran opnaði veitingastaðinn Grillmarkaðinn fyrir hálfum mánuði og hefur hann verið þéttsetinn öll kvöld síðan þá. Vinsældir staðarins eru svo miklar að röð hefur myndast fyrir utan dyrnar skömmu fyrir klukkan sex, en þá er staðurinn opnaður, og hafa þjónar þurft að vísa svöngum gestum frá vegna plássleysis.

Veitingastaðurinn hefur einnig verið fullbókaður flest kvöld frá opnun hans og hefur starfsfólkið því haft í nógu að snúast síðustu daga við að metta svanga gesti. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×