
„Villa Noailles er hálfgerð félagsmiðstöð þar sem haldin er hönnunarhátíðin Design Parade árlega. Partur af því er samkeppni ungra hönnuða," segir Brynjar við blaðamann um leið og hann stígur upp í rútu suður á bóginn. En honum var boðið að taka þátt í námskeiði á vegum skóframleiðandans Camper á Majorka. Var það hluti verðlauna sem hann hlaut á hönnunarsýningunni. Brynjar var valinn úr hópi fjölda ungra hönnuða í tíu manna úrtak sem tók þátt í sýningunni í Villa Noailles. „Ég kynnti verkin mín fyrir hálfgerðri dómnefnd og þeir völdu mig og annan strák sem sigurvegara þessarar keppni."
En hver voru verðlaunin? „Ég fékk styrk upp á 5.000 evrur til að búa til hlut fyrir gallerí Kreo í París," upplýsir Brynjar en galleríið hefur alþjóðlegan einkarétt á sýningu nokkurra þekktra ljósa sem framleidd hafa verið í takmörkuðu upplagi. Brynjar telur upp fleiri verðlaun. „Síðan fæ ég rannsóknarstyrk til að vinna með glerfyrirtækinu Cirva í Marseille. Þangað fer ég á næsta ári og fæ að vinna með þeim og gera tilraunir með gler. Í lokin verður svo útbúið verk eftir mig," segir Brynjar sem einnig fékk rannsóknarstyrk hjá Sèvres, keramíkfyrirtæki í París. „Verðlaunin felast í því að ég fæ skemmtileg verkefni til að vinna með."
Verðlaunaár Brynjars endar á því að hann fær að halda einkasýningu í Villa Noailles á Design Parade í júlí á næsta ári.
Brynjari, sem stundar nú mastersnám í vöruhönnun í Sviss, hefur gengið vel í grein sinni undanfarið en í lok síðasta árs var hann valinn til að hanna forsíðu hönnunartímaritsins Wallpaper.
Blaðamaður komst á snoðir um að vorverkefni Brynjars nú hafi verið valið eitt það besta í Evrópu úr hundruðum annarra af hinu þekkta hönnunar- og arkitektúrtímariti Blueprint. Brynjar er spurður um þetta: „Já er það? Það er gaman að því," segir hann glaðlega. „Ég vissi að það væri möguleiki."
martaf@frettabladid.is