Lífið

Glaðningur fyrir ríka aðdáendur

björk Biophilia er sjöunda hljóðversplata Bjarkar á enskri tungu.
björk Biophilia er sjöunda hljóðversplata Bjarkar á enskri tungu.
biophilia Tíu krómaðar tónkvíslir í tíu mismunandi litum fylgja með boxinu.
Á heimasíðu Bjarkar Guðmundsdóttur, Bjork.com, var á dögunum auglýst viðamikið Biophilia-box í tilefni af útgáfu samnefndrar plötu hennar. Þrátt fyrir að kosta hátt í eitt hundrað þúsund krónur er boxið nú þegar uppselt en það var gefið út í tvö hundruð númeruðum eintökum. Ljóst er að eingöngu alhörðustu aðdáendur söngkonunnar með mikið fé á milli handanna tryggðu sér eintak og er það væntanlegt til þeirra í pósti í lok september.

„Þetta er gefið út í mjög takmörkuðu upplagi,“ segir Ásmundur Jónsson í Smekkleysu, sem gefur út plötur Bjarkar hér á landi. Spurður hvort þetta sé dýrasta varan sem Björk hafi sent frá sér telur hann svo vera. „En það hafa oft verið hlutir á eBay sem tengjast henni á einhvern hátt sem hafa verið seldir á hærra verði.“

Biophilia hefur verið lýst sem heimsins fyrstu app-plötunni. Fyrir peninginn sem boxið kostar myndu sumir ætla að iPad-græja fylgdi með í kaupunum en svo er ekki. Fyrir 500 pund, eða um 93 þúsund krónur, fá kaupendur sendan heim til sín forláta viðarkassa með 48 blaðsíðna safaríkum Biophilia-bæklingi og tíu krómuðum tónkvíslum í tíu mismundandi litum. Hver tónkvísl um sig hefur verið gerð sérstaklega fyrir hvert lag á plötunni en þau eru tíu talsins. Að sjálfsögðu fylgir Biophilia-platan einnig með í kaupunum ásamt upptöku frá nýlegum tónleikum Bjarkar á listahátíðinni í Manchester.

Biophilia-boxið er eins og gefur að skilja eitt það dýrasta sem gefið hefur verið út og líklega það dýrasta sem ekki er safnbox með öllum plötum flytjanda. Þýsku rokkararnir í Rammstein eru ekki hálfdrættingar á við Björk því óvenjuleg útgáfa plötu þeirra, Liebe Ist Fur Alle Da, kostaði um 45 þúsund krónur. Auk viðhafnarútgáfu af plötunni sjálfri voru í boxinu sex kynlífsleikföng og hvert og eitt þeirra var sérmerkt einum meðlimi bandsins.

Dýrar endurútgáfur eru einnig vinsælar um þessar mundir, þar á meðal Nevermind-plata Nirvana sem kom fyrst út fyrir tuttugu árum. Super Deluxe-útgáfa plötunnar kostar þó „aðeins“ um fimmtán þúsund krónur sem eru smáaurar miðað við Biophilia-boxið.

freyr@frettabladid.is

Rammstein Sex kynlífsleikföng fylgdu með plötu Rammstein, Liebe Ist Fur Alle Da.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×