Lífið

Hefur selt 20 þúsund bækur

Góður árangur Friðrika Hjördís Geirsdóttir hefur selt tuttugu þúsund eintök af tveimur matreiðslubókum sínum á aðeins níu mánuðum.
Góður árangur Friðrika Hjördís Geirsdóttir hefur selt tuttugu þúsund eintök af tveimur matreiðslubókum sínum á aðeins níu mánuðum.
Friðrika Hjördís Geirsdóttir hefur eytt öllu sumrinu í að undirbúa nýjan matarþátt fyrir Stöð 2. Samkvæmt síðustu tölum hefur hún líka selt tuttugu þúsund eintök af tveimur matreiðslubókum sem komu út á þessu ári.

„Þetta er bara búið að vera enn ein meðgangan,“ segir Friðrika Hjördís Geirsdóttir sjónvarpskona.

Hún hefur selt, samkvæmt síðustu tölum, tuttugu þúsund eintök af matreiðslubókunum sínum tveimur sem komið hafa út á síðastliðnum níu mánuðum; annars vegar Léttir réttir og hins vegar Bollakökubókin. Friðrika segir þetta vera skemmtilegar tölur. „Maður er auðvitað þakklátur fyrir þessar viðtökur og ég hafði ekki alveg gert mér grein fyrir þessu.“

Friðrika er síður en svo hætt allri útgáfustarfsemi því í október kemur út þriðja bókin sem unnin er í tengslum við nýja matreiðsluþætti á Stöð 2. Hún gæti því mögulega náð hálfgerðri Arnaldar Indriða-stöðu hvað sölu varðar þótt sjónvarpskonan geri lítið úr þeim samanburði. „Hann verður alltaf á toppnum.“

Friðrika hefur því átt lítið sumarfrí, hún hefur eytt því í að undirbúa þáttaröðina enda segir hún að kyrrseta eigi ekki við sig. „Þarna fær athyglisbresturinn að njóta sín til fullnustu.“ Hún segist jafnframt njóta þess að vinna við matargerðarþætti enda reyni hún alltaf að finna eitthvað nýtt til að gera.

„Núna ætlum við til að mynda að ferðast um heiminn án þess að stíga fæti út úr eldhúsinu. Eitt land í einu verður tekið fyrir í hverjum þætti og kynntir til leiks réttir sem fólk tengir við það.“

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×