Lífið

Nýkvæntur og lofar góðri hátíð

Hinn nýkvænti Svavar Knútur er einn af skipuleggjendum tónlistarhátíðarinnar Melodica Acoustic Festival.
fréttablaðið/heiða
Hinn nýkvænti Svavar Knútur er einn af skipuleggjendum tónlistarhátíðarinnar Melodica Acoustic Festival. fréttablaðið/heiða
athebustop Athebustop frá Ítalíu spilar á Melodica-hátíðinni.
Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur hefur í nógu að snúast þessa dagana. Um síðustu helgi gekk hann að eiga Líneyju Úlfarsdóttur en þau eiga von á erfingja í nóvember. Hann er einnig að skipuleggja tónlistarhátíðina Melodica Acoustic sem hefst á morgun. Fleira er fram undan hjá trúbadornum knáa. Tveggja vikna tónleikaferð um Evrópu verður farin í september og verða flestir tónleikarnir í Þýskalandi.

Sjálfur vill Svavar lítið tjá sig um einkalíf sitt en lofar á hinn bóginn skemmtilegri tónlistarhátíð um helgina. Hátt í sjötíu flytjendur spila í miðbæ Reykjavíkur og stendur hátíðin yfir í þrjá daga. Ókeypis er inn á alla viðburði og eingöngu sjálfboðaliðar eru á bak við tjöldin. „Erlendu gestirnir koma allir sjálfir án alls stuðnings og styrkja. Þeir gera þetta bara upp á gamanið og til að kynnast öðrum listamönnum," segir Svavar Knútur. Á meðal þeirra verða Owls of the Swamp frá Ástralíu, Athebustop frá Ítalíu og Tobern Stock frá Þýskalandi. Þeir spila á tónleikum í versluninni 12 Tónum kl. 17.30 í dag sem eru tileinkaðir hátíðinni.

Meðal nýjunga á Melodica í ár eru órafmagnaðir tónleikar hljómsveita sem hingað til hafa verið þekktari fyrir rafmagnaðri uppákomur. Þar má nefna Morðingjana, Sykur, Bloodgroup og Ultra Mega Technobandið Stefán. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×