Lífið

Ballaða frá Jones í boði

Lagið Stay With Me sem Alan Jones syngur með Írisi Hólm er fáanlegt á Tónlist.is.
Lagið Stay With Me sem Alan Jones syngur með Írisi Hólm er fáanlegt á Tónlist.is.
Ballaða Alans Jones og Írisar Hólm, Stay With Me, er núna fáanleg á síðunni Tónlist.is en lagið fór í útvarpsspilun fyrr í sumar. Allur ágóðinn rennur til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Myndband við lagið er væntanlegt um miðjan næsta mánuð. Þar verður þemað ást en ekki brúðkaup eins og áður var fyrirhugað.

Lagið er eftir Jones, sem er með fleiri járn í eldinum. Hann er að skipuleggja tónleika á Nítjándu hinn 1. desember. Meðal flytjenda verða Jóhanna Guðrún, Haffi Haff og Bryndís Ásmundsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×