Lífið

Játar ást sína

Jim Carrey bjó til myndband þar sem hann játar leikkonunni Emmu Stone ást sína.
nordicphotos/getty
Jim Carrey bjó til myndband þar sem hann játar leikkonunni Emmu Stone ást sína. nordicphotos/getty
Gamanleikarinn Jim Carrey setti nýverið á netið myndband þar sem hann játar leikkonunni Emmu Stone ást sína. Töluverður aldursmunur er á þeim og þykir mörgum myndbandið því óviðeigandi.

Meðal þess sem Carrey segir í myndbandinu er að væri hann talsvert yngri myndi hann ganga að eiga Stone og eignast með henni freknótt börn. Svo minnist hann á kynlífið sem hann segir verða dásamlegt. „Mig langaði til að láta þig vita hvaða tilfinningar ég ber til þín. Þú ert einstök og ég óska þér velgengni, ástar og hamingju,“ sagði Carrey sem lýkur myndbrotinu með því að fara að snökta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×