Lífið

Emma í sambúð

Emma Watson er flutt inn með kærasta sínum, leikaranum Johnny Simmons. 
fRÉTTABLAÐIÐ/AP
Emma Watson er flutt inn með kærasta sínum, leikaranum Johnny Simmons. fRÉTTABLAÐIÐ/AP
Leikkonan Emma Watson er byrjuð að búa með kærasta sínum Johnny Simmons. Kærustuparið, sem byrjaði saman í sumar, flutti inn í hús föður Watson í London.

Watson og Simmons hafa ekki farið leynt með ást sína undanfarið og náðst hafa nokkrar innilegar myndir af þeim á götum Lundúnaborgar. Vinir þeirra segjast aldrei hafa séð þau jafn ástfangin og að sambandið sé komið á alvarlegt stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×