Lífið

Einn dagur frumsýndur

Aðalleikararnir Anne Hathaway og Jim Sturgess voru brosmild á frumsýningunni og skemmtu sér vel.
Aðalleikararnir Anne Hathaway og Jim Sturgess voru brosmild á frumsýningunni og skemmtu sér vel.
Tískufyrirmynd Peaches Geldof í fallegum síðum kjól.
Rauða dreglinum var rennt út í London þegar nýjasta kvikmynd leikkonunnar Anne Hathaway, One Day, var frumsýnd. Myndin er byggð á skáldsögu Davids Nicholls og fjallar um tvo vini og lífshlaup þeirra á tuttugu ára tímaskeiði. Vinirnir eru leiknir af Hathaway og Jim Sturgess sem skörtuðu sínu fegursta og stilltu sér glöð upp framan við myndavélarnar í London.

Einnig var hinn hálf íslenski Fredrik Ferrier gestur á frumsýningunni en hann er þekktur í Bretlandi fyrir þátttöku sína í raunveruleikaþáttunum Made in Chelsea.

reffileg Rithöfundurinn Nick Hornby og Amanda Posey voru litaglöð.
Hvítur kjóll Rauður varalitur og hvítur kjóll varð fyrir valinu hjá leikkonunni Jodie Whittaker.
Bláklæddur Fredrik Ferrier mætti í blárri peysu og með ónafngreinda dömu upp á arminn. nordicphotos/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×