Lífið

Endurskoðandi Forlagsins allur

Sorg og gleði Jóhann Páll syrgir nú endurskoðandann sinn Breka sem féll frá eftir nýrnabilun. Ljósið í myrkrinu er hins vegar þessi mánaðargamli kettlingur sem Jóhann hefur tekið að sér.Fréttablaðið/GVA
Sorg og gleði Jóhann Páll syrgir nú endurskoðandann sinn Breka sem féll frá eftir nýrnabilun. Ljósið í myrkrinu er hins vegar þessi mánaðargamli kettlingur sem Jóhann hefur tekið að sér.Fréttablaðið/GVA
„Það er mikil sorg á heimilinu enda Breki einstakur köttur," segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi. Hann missti í vikunni góðan vin þegar kötturinn Breki andaðist á heimili Jóhanns við Bræðraborgarstíg. Breki gegndi stöðu endurskoðanda hjá Forlaginu en hann var jarðaður í Skorradal á miðvikudag. „Hann varð fyrir nýrnabilun. Við biðum eftir kraftaverki eftir að hann varð veikur og vildum ekki láta svæfa hann en svo gerðist hið óumflýjanlega og við gátum ekki látið dýrið þjást meira."

Jóhann á góðar minningar um Breka, hann hafi verið ofdekraður eins og prins og hagað sér í samræmi við það. „Hann var mjög sérlundaður og var farinn að færa sig upp á skaftið gagnvart stjórnarformanninum Randver sem er líka köttur. En hann var ákaflega góður köttur og svaf allar nætur á kodda uppi í rúmi hjá okkur hjónum." Jóhann Páll hefur aldrei viljað gera upp á milli kattanna sinna en hann viðurkennir að Breki hafi átt sérstakan stað í hjarta hans, þeir hafi verið ansi nánir.

En það var samt ljós í myrkrinu því á miðvikudagskvöld komu sonur hans og kærasta til hans og sögðu honum frá mánaðargömlum kettlingi sem kunningi þeirra hafði fundið á víðavangi í Hafnarfirði. Og hefur Jóhann Páll nú tekið hann að sér, fóstrar eins og móðir með sætri mjólk úr pela. „Ég vissi ekki hvort ég væri að gera rétt gagnvart Breka en þessi kettlingur er algjör himnasending frá Guði." - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×