Lífið

Myndar lausagöngu ferðamanna

með smalahund Kári Sturluson með smalahundinum sínum Loppu hjá Hallgrímskirkju innan um erlenda ferðamenn í lausagöngu.mynd/eddi
með smalahund Kári Sturluson með smalahundinum sínum Loppu hjá Hallgrímskirkju innan um erlenda ferðamenn í lausagöngu.mynd/eddi
Umboðsmaðurinn og tónleikahaldarinn Kári Sturluson heldur sína fyrstu ljósmyndasýningu á gistiheimilinu Kex Hostel í október. Sýningin heitir Lausaganga ferðamanna í borgarlandinu.

„Ég er búinn að vera að taka myndir á Blackberry-símann minn við og við og hef verið að pósta þeim á Facebook. Í sumar vorum við félagi minn að tala um að það væri svo rosalega mikið af túristum í miðbænum og vorum að tala um þetta eins og lausagöngu, rétt eins og með kindurnar,“ segir Kári, sem hefur starfað með Sigur Rós og flutt til landsins Damien Rice og Duran Duran.

„Ég tók fyrstu myndina af ferðamönnum í lausagöngu á Austurvelli í svona hjörð á röltinu. Upp frá því fór ég að taka meira eftir þessu og fór að smella af á fullu. Þá þróaðist þetta út í seríu.“

Aðspurður segist Kári aldrei hafa haft áhuga á ljósmyndun þrátt fyrir að bróðir hans, Snorri, sé ljósmyndari og hluti af auglýsingafyrirtækinu Snorri Bros, og að pabbi þeirra sé mikill áhugamaður um ljósmyndun. „Ég hef reynt að taka myndir á stafræna myndavél en þær hafa yfirleitt verið frekar daprar. Blackberry-inn er hins vegar pínulítill og þægilegur og myndirnar eru ekkert sérlega góðar úr honum hvort sem er,“ segir hann léttur. „Það skiptir engu máli þótt ljósmyndarinn sé líka lélegur.“

Opnunarhóf sýningarinnar verður 10. október og formleg opnun daginn eftir. Sýningin stendur yfir í eina viku og mun Þorsteinn J. rita formála að sýningunni. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×