Lífið

KR-ingar leita að opinni rútu

eins og í Katalóníu Svona gæti verið umhorfs í Vesturbæ Reykjavíkur ef KR-ingar finna réttan fararskjóta. Kristinn Kjærnested segir ýmsar hugmyndir vera á borðinu um sigurhátíð liðsins.
eins og í Katalóníu Svona gæti verið umhorfs í Vesturbæ Reykjavíkur ef KR-ingar finna réttan fararskjóta. Kristinn Kjærnested segir ýmsar hugmyndir vera á borðinu um sigurhátíð liðsins.
„Menn hafa verið að kasta á milli sín hugmyndum um sigurhátíðina í vikunni," segir Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR.

KR tryggði sér á dögunum Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta, en fyrir er liðið ríkjandi bikarmeistari. Lokaumferðin í Pepsi-deild karla fer fram á laugardaginn, en þá munu Valur og KR eigast við á Hlíðarenda. Eftir leikinn verður mikið um dýrðir í Vesturbænum, en þar gengur sú saga að opin rúta verði leigð undir liðið líkt og tíðkast víða í íþróttaheiminum.

Kristinn segir að sú hugmynd sé góð og viðurkennir að hún hafi verið rædd.

„Þetta er ekki útilokað. Það á eftir að koma á óvart, hvernig þetta verður," segir hann og bætir við að íslenska veðráttan mætti vera eins og sú í Katalóníu þar sem þúsundir heimamanna hafa fagnað titlum Börsunga á þennan hátt. „Það verða þarna sætar konur og vel snyrtir karlar, þannig að það gæti orðið spes ef við keyrum með þau alla leið út á nes. Það er hins vegar þannig, að við gerum ekki ráð fyrir því að það verði mikið af öðrum Reykvíkingum sem vilja hylla okkur. Þó að ég viti að mörgum þykir miklu vænna um okkur en þeir vilja viðurkenna."

KR-ingar fagna titlunum á Rauða ljóninu á Eiðistorgi. Liðið mætir þangað klukkan 21 og Kristinn segir það sé verið að sjóða saman dagskrána. „Það verður einhver hljómsveit og húllumhæ," segir hann. „Það hefur verið afar skemmtilegt, þegar sigrarnir hafa komið. Þá mæta strákarnir á svalirnar og stuðningsmennirnir eru á torginu og þeir eru kynntir og hylltir." - afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×