Lífið

Ashton hélt framhjá Demi

Búið spil Hjónabandi Ashtons Kutcher og Demi Moore er lokið vegna þess að leikarinn hélt ítrekað framhjá eiginkonu sinni. Nordicphotos/getty
Búið spil Hjónabandi Ashtons Kutcher og Demi Moore er lokið vegna þess að leikarinn hélt ítrekað framhjá eiginkonu sinni. Nordicphotos/getty
Hjónakornin Ashton Kutcher og Demi Moore eru að skilja ef marka má fréttaflutning Star Magazine. Leikarinn er greinilega ekki mikið að syrgja, en til hans sást á föstudagskvöldið á skemmtistað í San Diego þar sem hann var umkringdur fögrum fljóðum og fékk ein stúlkan að fylgja leikaranum upp á hótel.

Kutcher og Demi Moore giftu sig 24. september 2005 og fögnuðu því sex ára brúðkaupsafmæli á laugardaginn. Samkvæmt heimildum blaðsins sótti parið um skilnað fyrir stuttu og ástæðan ku vera ítrekað framhjáhald Kutchers. Leikkonan Demi Moore er í mikilli ástarsorg samkvæmt heimildarmanni blaðsins en á sínum tíma vakti parið mikla athygli þegar þau byrjuðu saman, ekki síst vegna aldursmunarins sem er sextán ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×