Lífið

Særði blygðunarkennd bónda

of léttklædd Söngkonan Rihanna var of léttklædd fyrir írskan bónda. 
Nordicphotos/getty
of léttklædd Söngkonan Rihanna var of léttklædd fyrir írskan bónda. Nordicphotos/getty
Poppstjarnan Rihanna lenti í vandræðum við tökur á myndbandi á Írlandi á dögunum. Rihanna var búin að fá leyfi hjá bónda til að taka upp myndband á akrinum hans en þegar bóndinn sá hversu léttklædd Rihanna var við tökur var hann ekki lengi að stöðva þær.

„Mér fannst þetta bara ekki vera viðeigandi,“ sagði bóndinn við sjónvarpsstöðina BBC, en Rihanna var klædd í bikiní og með sjal. Tökuliðið þurfti því að pakka saman og finna nýjan tökustað í kjölfarið.

Myndbandið er við lagið We Found Love af nýrri plötu söngkonunnar sem kemur út í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×