Lífið

Hollenskur furðufugl til landsins

Ógeðfelld Kvikmyndin The Human Centipede 2 var bönnuð í Bretlandi og þar með fékk leikstjórinn Tom Six sínar fimmtán mínútur af frægð.
Ógeðfelld Kvikmyndin The Human Centipede 2 var bönnuð í Bretlandi og þar með fékk leikstjórinn Tom Six sínar fimmtán mínútur af frægð.
„Ég hvet engan til að sjá þessa mynd, í fullri alvöru. Hostel-myndirnar eru bara léttvæg upphitun við hliðina á þessari,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson hjá Græna ljósinu.

Hryllingsmyndin The Human Centipede 2 verður frumsýnd hér á landi 11. nóvember. Hinn 10. nóvember gefst áhorfendum hins vegar kostur á að hitta hollenskan leikstjóra myndarinnar, Tom Six, og systur hans, Illonu Six, og spyrja þau spjörunum úr. Þau systkini eiga að vera afar viðkunnanleg þótt kvikmyndagerð þeirra orki að margra mati tvímælis.

„Við erum búnir að kaupa farseðilinn og panta gistingu,“ segir Ísleifur, sem bætir því við að myndin verði að öllum líkindum bönnuð innan tvítugs og sérstakur vörður verði við kvikmyndasalinn til passa upp á að enginn undir aldri komist inn. „Hún verður sýnd í mjög takmarkaðan tíma.“

Myndin fékk sínar fimmtán mínútur af frægð þegar breska kvikmyndaeftirlitið ákvað að banna hana fyrir skemmstu. Eftirlitið taldi að myndin gerði enga tilraun til að sýna fórnarlömbin á annan hátt en hluta sem aðalpersónan misnotar miskunnarlaust og aflimar sér til skemmtunar. Þær meiðingar eiga síðan að vera hugsaðar sem einhvers konar skemmtiefni fyrir áhorfendur. Að mati eftirlitsins sé því hætta á að kvikmyndin geti valdið raunverulegum skaða.

Ákvörðunin vakti mikla athygli en breska blaðið Guardian telur þó að eftirlitið hafi sparað mörgum ómakið og nokkur pund; The Human Centipede 2 sé nefnilega óttalegt rusl þrátt fyrir allt umtalið.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×