Lífið

Ánægð eftir skilnaðinn

Ánægð Jennifer Lopez er hamingjusöm og ánægð eftir skilnaðinn við Marc Anthony.
nordicphotos/getty
Ánægð Jennifer Lopez er hamingjusöm og ánægð eftir skilnaðinn við Marc Anthony. nordicphotos/getty
Leik- og söngkonan Jennifer Lopez er komin aftur til starfa sem dómari í sjónvarpsþáttunum American Idol og að sögn samstarfsmanna hennar er ekki á henni að sjá að hún hafi verið að skilja.

„Við erum byrjuð að vinna að nýju og Jennifer stendur sig vel. Hún er sterk og alveg frábær einstaklingur,“ sagði Randy Jackson, dómari American Idol. Hann segir Lopez ávallt í góðu skapi og að henni virðist líða vel eftir skilnaðinn við Marc Anthony. Hún hefur dembt sér í vinnu og hefur endurvakið söngferil sinn með útgáfu nýrrar plötu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×