Lífið

Vesturport biðlar til Reykjavíkurborgar

Á biðilsbuxum Gísli Örn Garðarsson fer þess á leit við Reykjavíkurborg að hún semji við leikhópinn til þriggja ára. Sá samningur myndi hljóða upp á 6-8 milljónir króna.
Á biðilsbuxum Gísli Örn Garðarsson fer þess á leit við Reykjavíkurborg að hún semji við leikhópinn til þriggja ára. Sá samningur myndi hljóða upp á 6-8 milljónir króna.
Vesturport fer þess á leit í erindi sem lagt var fyrir á fundi menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar á mánudag að borgin semji við leikhópinn til þriggja ára. Samningurinn myndi hljóða upp á að borgin greiði leikhópnum 6-8 milljónir króna á ári. Í erindinu kemur jafnframt fram að Vesturport ætli að fara þess á leit við menntamálaráðuneytið að það geri slíkt hið sama. Undir erindið skrifar Gísli Örn Garðarsson.

Í erindinu kemur fram að Vesturport hafi verið styrkt af Reykjavíkurborg frá árinu 2002. 2003–2006 hafi hópurinn fengið styrki sem gerði honum kleift að halda úti útrás sinni.

„Svo gerist það árið 2007 að styrkir til okkar lækka og hafa þeir farið lækkandi síðan. Þetta hefur haft þær afleiðingar að við höfum þurft að segja upp starfsfólki. Þetta hefur gert okkur erfiðara fyrir og ef reyndin verður sú sama í framtíðinni verður enginn fastur starfsmaður hjá Vesturporti frá og með 2012.“ Að mati Gísla mun það bitna á tækifærum

hópsins til útrásar en í október verður Faust sett upp í Kóreu og Hamskiptin sýnd í Síberíu.

Samkvæmt erindinu þarf Vesturport umræddan fjárstuðning til að geta rekið Vesturport í:

„samræmi við þá stærðargráðu sem við getum hæglega vaxið í.“ Sýningar hópsins séu oft í mörgum löndum á sama tíma og við slíkar aðstæður sé ráðið nýtt listafólk inn til að sinna þeim störfum. „Fleiri leikferðir og stærri útrás þýðir að fleiri Íslendingar fá vinnu […}auk þess sem hróður íslenskrar leiklistar berst víðar.“ Ef Reykjavíkurborg fellst á samninginn gæti hópurinn, að mati Gísla Arnar, undantekningarlaust frumsýnt 2-3 nýjar leiksýningar á ári. Ekki náðist í Gísla Örn vegna málsins.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×