Lífið

Sigríður gerist hrekkjusvín

Hleypur í skarðið fyrir Tinnu Leikkonan Sigríður Eyrún Friðriksdóttir kemur í staðinn fyrir Tinnu Hrafnsdóttur í leikritinu Hrekkjusvínum, en Tinna verður að draga sig í hlé vegna óléttu.Fréttablaðið/vilhelm
Hleypur í skarðið fyrir Tinnu Leikkonan Sigríður Eyrún Friðriksdóttir kemur í staðinn fyrir Tinnu Hrafnsdóttur í leikritinu Hrekkjusvínum, en Tinna verður að draga sig í hlé vegna óléttu.Fréttablaðið/vilhelm
„Ég er svo mikill adrenalínfíkill að þetta leggst bara vel í mig,“ segir leikkonan Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, sem þessa dagana situr með nefið ofan í handriti leikritsins Hrekkjusvínanna.

Sigríður hleypur í skarðið fyrir Tinnu Hrafnsdóttur í leikritinu og tekur við strax eftir tvær vikur. Tinna er ólétt af tvíburum og er kúlan því farin að setja sitt mark á sýninguna. „Þetta er að gerast aðeins hraðar en ég hélt enda tvö börn og það er ekki hægt að leika sex ára barn með stækkandi kúlu lengi,“ segir Tinna, sem ætlar að leika í næstu tveimur sýningum en síðan tekur Sigríður við.

Sigríður fór á sínum tíma í prufur fyrir hlutverk í leikritinu og var því mjög glöð þegar María Reyndal leikstjóri hafði samband við hana í síðustu viku. „Ég fór á frumsýninguna og skemmti mér mjög vel. Stóð meira segja upp í lokin og klappaði,“ segir Sigríður sem fékk síðan að sitja rennsli um helgina og hlakkar mikið til að vera hluti af leikhópnum. Sigríður sýnir þessa dagana Uppnám í Þjóðleikhúskjallaranum og ætlar að púsla þessu tvennu saman í vetur.

Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir helgi voru ákveðnir hnökrar í frumsýningunni í kjölfarið á rafmagnsleysi af völdum eldingar. „Við sluppum sem betur fer við frekari hrekki af himnum ofan um helgina og erum búin að stytta og þétta sýninguna síðan þá. Hljóðið er núna í fullkomnu lagi,“ segir Tinna, sem á von á sér í lok febrúar.

- áp


Tengdar fréttir

Saturdays-stúlka fékk lungnabólgu á Íslandi

Söngferill Frankie Sandford, sem er einn meðlima stúlknasveitarinnar The Saturdays, gæti verið í hættu vegna lungnabólgu sem hefur haldið henni frá störfum að undanförnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×