Lífið

Brand ósáttur við Rihönnu

Russell Brand, eiginmaður Katy Perry, er óánægður með vináttu þeirra Rihönnu.
Russell Brand, eiginmaður Katy Perry, er óánægður með vináttu þeirra Rihönnu. nordicphotos/getty
Vinskapur söngkvennanna Katy Perry og Rihönnu fellur ekki vel í kramið hjá eiginmanni þeirrar fyrrnefndu, gamanleikaranum Russell Brand. Honum finnst víst nóg um skemmtanahald vinkvennanna og hefur óskað eftir því að Perry hætti að umgangast Rihönnu.

„Hann er grænmetisæta sem hvorki reykir né drekkur en hún er ung, efnuð og vill skemmta sér. Þau lifa mjög ólíku lífi. Honum er illa við Rihönnu og finnst þær helst til of skemmtanaglaðar. Hann hefur sagt Katy að fullorðnast og taka á sínum málum," var haft eftir vini parsins.

Perry og Rihanna hafa verið góðar vinkonur í nokkur ár og samkvæmt heimildum deilir Perry ekki skoðunum eiginmanns síns því henni finnst hún eiga skilið að sletta úr klaufunum inni á milli. „Rihanna er góð vinkona mín og við erum báðar farþegar í sama klikkaða rússíbananum," hefur Perry sagt um vináttu þeirra Rihönnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×