Lífið

Hugsar lítið um útlitið

Hversdagslegur Jack Osbourne fengi ekki góða dóma í þætti systur sinnar, Fashion Police.
Hversdagslegur Jack Osbourne fengi ekki góða dóma í þætti systur sinnar, Fashion Police.
Jack Osbourne segist ekki eyða miklum tíma í að hafa áhyggjur af útliti sínu. „Ég er langt frá því að vera hégómafullur. Ég get sleppt því að raka mig og klippa á mér hárið svo vikum skiptir,“ var haft eftir Osbourne.

Systir Jacks, Kelly Osbourne reynir víst hvað hún getur til að fá bróður sinn til að huga að útlitinu en hann þvertekur fyrir það og segir flest annað ofar á forgangslistanum. „Sólarnir eru að losna undan skónum mínum. Það er ekki tískuyfirlýsing – mér er bara alveg sama.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×