Dýrmætasta gjöfin 11. nóvember 2011 11:00 Egill Ingi Jónsson eigandi Myndavals með myndabók í fanginu, umkringdur fallegum vörum til jólagjafa.mynd/stefán
Ljósmyndabækur og dagatöl með persónulegum ljósmyndum eru jólagjafir sem kæta hjörtu allra sem hljóta. Minningar úr sumarleyfinu, frá fermingardeginum eða öðrum einstökum viðburðum innan fjölskyldunnar eru oft dýrmætasta jólagjöfin og sú sem hittir beint í mark,“ segir Egill Ingi Jónsson, eigandi Myndvals, sem eftir 20 ár í Mjóddinni hefur flutt sig um set yfir á Smáratorg, nánar tiltekið í verslunarrými A4. „Nú fyrir jólin bjóðum við í fyrsta sinn upp á myndabók með óþrjótandi möguleikum á útliti og útfærslum. Bókina er leikur einn að gera eftir að sótt er lítið forrit á heimasíðuna okkar. Í forritinu getur fólk dundað sér við að setja inn myndir að óskum í bókina, texta og minningar, og leikið sér að útliti hennar eftir smekk hvers og eins. Þegar bókin er tilbúin er hún ýmist send til okkar í gegnum netið, sett á disk eða minnislykil og við tökum við verkinu með framköllun á ljósmyndapappír sem við svo setjum saman í fallega og eigulega bók,“ útskýrir Egill, en á úrvals ljósmyndapappír verður bókin áferðarfallegri og varanlegri, rétt eins og dæmigert myndaalbúm. Í forritinu sem sótt er á heimasíðu Myndvals opnast líka tækifæri til að útbúa dagatal með myndum að eigin vali fyrir hvern mánuð ársins. „Dagatalið er unnið á sama hátt og myndabókin og hægt að leika sér með afmælisdaga, raða inn frídögum og fleiru skemmtilegu sem gleður þann sem nýtur þess á ári komanda,“ segir Egill sem eftir útprentun setur dagatölin ýmist á fót til að hafa á borði eða í stærri útgáfu til upphengingar. Fyrir jólin býður Myndval einnig upp á myndajólakort með umslagi. Þau fást einhliða í þremur stærðum, þar sem ljósmynd og jólakveðja er áprentuð, en einnig fást opnanleg jólakort þar sem unnt er að handskrifa jólakveðju. „Eftir að dagatöl og myndabækur viðskiptavina er komið í okkar hendur tekur um þrjá daga að fullvinna verkið. Þá er alltaf hægt að koma til okkar í búðina og ganga frá málum á staðnum. Verslunin er þekkt fyrir mikið og gott úrval myndaramma og sjón sögu ríkari að skoða allt í með eigin augum,“ segir Egill brosmildur í jólaskapi á nýjum stað. Heimasíða Myndvals er www.myndval.is. Nýja verslunin er á Smáratorgi 1, inni í verslunarrými A4.
Sérblöð Mest lesið Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Viðskipti innlent Gengi Alvotech hrynur Viðskipti innlent „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ Viðskipti innlent Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Viðskipti innlent „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Viðskipti innlent 25 sagt upp í fiskvinnslu Viðskipti innlent Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Viðskipti innlent Gengi Alvotech aldrei lægra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Bauhaus styrkir góð málefni fyrir jólin „Ég fæ hroll þegar fólk segist hafa notað sama lykilorðið í 20 ár“ Forvarnarverðlaun VÍS: „Öryggi er ekki samkeppnismál“ ÍMARk rýnir í markaðsheim framtíðarinnar Tengiltvinnari fyrir taugatrekkta Peltor og Dynjandi saman í 60 ár Framlína heilbrigðisþjónustunnar kallar eftir liðsauka Persónuleg reynsla varð að atvinnurekstri Rafmagnað fyrsta stefnumót við Nissan Ariya Í stuði í 130 ár: Virkjanir sem leystu af dísilvélar og knúðu síldarbæ KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Sjá meira