Lífið

Litla herramennskukverið kemur út

í skýjunum Kristinn Árni Hróbjartsson einn höfunda Litla Herramennskukversins er mjög ánægður með að þeim hafi tekist að safna fyrir útgáfu bókarinnar með nýstárlegri söfnunaraðferð. Bókin kemur því út fyrir jólin. 
Fréttablaðið/valli
í skýjunum Kristinn Árni Hróbjartsson einn höfunda Litla Herramennskukversins er mjög ánægður með að þeim hafi tekist að safna fyrir útgáfu bókarinnar með nýstárlegri söfnunaraðferð. Bókin kemur því út fyrir jólin. Fréttablaðið/valli
„Þetta er bara algjör snilld og við erum í skýjunum,“ segir Kristinn Árni Hróbjartsson sem ásamt þeim Brynjari Guðnasyni og Júlíusi Valdimarssyni hafa náð settu takmarki í söfnun fyrir útgáfu Litla herramennskukversins.

Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir stuttu fundu þeir félagarnir skemmtilega fjármögnunarleið á netinu til að safna fyrir útgáfu bókarinnar, eins konar hópfjármögnun þar sem fólk kaupir eintak í forsölu og styrkir um leið útgáfu bókarinnar. Félagarnir þurftu að safna rúmlega 460 þúsund íslenskum krónum og náðu settu markmiði á miðvikudaginn, tíu dögum áður en söfnuninni lýkur formlega. Litla herramennskukverið er uppflettirit þar sem hægt er að finna ýmsan fróðleik fyrir herramenn.

„Við höfðum alltaf trú á þessu verkefni en það kom okkur vissulega á óvart hversu stuttan tíma þetta tók og hvað það eru margir á styrktarlistanum sem við þekkjum ekki. Það er greinilegt að þetta framtak féll í góðan jarðveg,“ segir Kristinn sem skilar kæru þakklæti til allra sem hafa keypt sér bók í forsölu og um leið hjálpað til við að koma bókinni út.

„Það hjálpaði okkur heilmikið að verslunin Herragarðurinn var svo hrifin af þessu framtaki okkar að hún keypti stærsta pakkann,“ segir Kristinn en stærsti pakkinn kostaði um 170 þúsund krónur. „Við erum bara að fara að demba okkur í jólabókaflóðið, sem er frekar óraunverulegt.“

Ennþá er hægt að tryggja sér eintak í forsölu á síðunni herramennska.pozible.com en bókin kemur út í byrjun desember og verður til sölu í Herragarðinum, Iðu og Máli & menningu fyrir jólin.- áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×