Lífið

Hættir ekki að reykja

háð sígarettum Aðdáendur Adele vona að hún taki sig á og hætti að reykja.
háð sígarettum Aðdáendur Adele vona að hún taki sig á og hætti að reykja.
Hin ástsæla söngkona Adele er nú á batavegi eftir að hafa gengist undir aðgerð á raddböndum. Aðgerðin gekk vel og aðdáendur söngkonunnar önduðu léttar þegar þær fréttir bárust, en nú hafa þeir áhyggjur af henni vegna reykingafíknar hennar.

Boy George er meðal þeirra sem hafa beint orðum sínum til Adele og hvatt hana til að hætta að reykja, enda segir hann það eitthvað það versta sem söngvari geti gert sjálfum sér.

Adele hefur hins vegar talað opinskátt um hversu háð hún sé reykingunum og hefur jafnvel sagst frekar vilja hætta að syngja en hætta að reykja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×