Lífið

Winehouse spáð toppsætinu

ný plata Nýrri plötu með Amy Winehouse hefur verið spáð toppsæti vinsældalista.
nordicphotos/Getty
ný plata Nýrri plötu með Amy Winehouse hefur verið spáð toppsæti vinsældalista. nordicphotos/Getty
Ný plata frá hinni sálugu Amy Winehouse, Lioness: Hidden Treasures, kemur út á mánudaginn. Talið er að hún fari beint í efsta sæti vinsældalista úti um allan heim.

Platan hefur að geyma tólf lög með Winhouse sem hún hafði sum lokið við áður en hún lést. Það voru vinir hennar, upptökustjórarnir Mark Ronson og Salaam Remi, sem völdu lögin.

Faðir söngkonunnar segir að platan hefði aldrei komið út ef fjölskylda hennar héldi að lögin væru ekki nógu góð. „Fjölskyldan taldi að ekkert yrði gefið út nema það væri sambærilegt við plöturnar Frank eða Back to Black,“ sagði hann.

„Ef þetta væri ekki eins gott og þær hefðum við aldrei leyft útgáfuna.“ Winehouse lést í sumar, aðeins 27 ára, eftir langa baráttu við áfengis- og eiturlyfjafíkn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×