Lífið

Hughreysti aðdáanda

brad pitt Leikarinn hughreysti aðdáanda eftir sýningu á Moneyball.
brad pitt Leikarinn hughreysti aðdáanda eftir sýningu á Moneyball.
Brad Pitt hughreysti aðdáanda sinn sem hafði íhugað sjálfsvíg áður en hann sá nýjustu mynd leikarans, Moneyball. Pitt var viðstaddur sýningu á myndinni þar sem hægt var að spyrja hann út í söguþráðinn að henni lokinni.

Aðdáandinn sagðist hafa glímt við sjálfsmorðshugsanir fyrr um daginn og að myndin hefði gefið honum von. Maður sem var viðstaddur sýninguna hafði þetta að segja: „Brad sagði: Heyrðu, lífið er fullt af hæðum og lægðum. Þú verður að sætta þig við það. Þú verður kannski leiður en þegar þú hressist við geta hver mistök leitt til frama."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×