Lífið

Hittast á leynilegum stefnumótum

Sundur og saman Nicole Scherzinger og Lewis Hamilton ætla eiga nokkur leynileg stefnumót þegar Formúlu 1-tímabilið er búið.
Sundur og saman Nicole Scherzinger og Lewis Hamilton ætla eiga nokkur leynileg stefnumót þegar Formúlu 1-tímabilið er búið.
Nicole Scherzinger og Lewis Hamilton hafa ákveðið að hittast á nokkrum leynilegum stefnumótum til að athuga hvort þau geti blásið lífi í fjögurra ára samband sitt.

Parið hætti saman í október en þar sem Formúlu 1-tímabilinu fer senn að ljúka hjá Hamilton gera þau sér nú vonir um að geta eytt góðum tíma saman.

„Það er erfitt að viðhalda blossanum meðan á Formúlu-tímabilinu stendur. Lewis er svo upptekinn því það er alltaf nýtt land í hverri viku. Og þau vilja ekki nota Skype því það er bara ekki eins,“ hefur The Sun eftir heimildarmanni sínum. „Lewis getur varla beðið eftir að hitta hana á ný,“ bætir heimildarmaðurinn við.

Þrátt fyrir að parið hafi hætt saman nýverið viðurkenndi Lewis að hann bæri ennþá sterkar tilfinningar til söngkonunnar bandarísku. „Hver veit, kannski verðum við saman í náinni framtíð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×