Lífið

Palli með sinaskeiðabólgu eftir áritanir

Ekkert stoppar Palla Poppstjarna Íslands lætur sinaskeiðabólgu ekki stöðva sig heldur áritar sem aldrei fyrr með aðstoð bólgueyðandi lyfja og sjúkranudds.
Ekkert stoppar Palla Poppstjarna Íslands lætur sinaskeiðabólgu ekki stöðva sig heldur áritar sem aldrei fyrr með aðstoð bólgueyðandi lyfja og sjúkranudds.
„Ég hef aldrei fengið svona á ævinni en er núna að éta bólgueyðandi töflur og liðaktín ásamt því að fara í sjúkranudd þrisvar í viku. Ætli ég mæti ekki í næstu áritun með svona lyftingahanska,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson. Jólatörnin er farin að setja mark sitt á poppstjörnuna því hún greindist nýlega með sinaskeiðabólgu.

Sinaskeiðabólgan lýsir sér þannig að erfitt er að taka í höndina á fólki og erfitt að halda á penna. „Ástæðan fyrir þessu er tvíþætt. Ég var að taka upp tónlistarmyndband fyrir UNICEF og í glæsilegu dansspori tókst mér að reka höndina í rafmagnstöflu. Hin ástæðan er sú að í síðustu viku hefur verið svolítill hamagangur í áritunum og mér tókst að skrifa nafnið mitt 900 sinnum,“ útskýrir Páll Óskar sem hyggst þó hvergi slaka á heldur ætlar að halda uppteknum hætti og mætir galvaskur í næstu átta áritanir sem skipulagðar hafa verið því hann veit, af eigin reynslu, hversu mikilvægt þetta er. Hann rifjar upp sögu af því þegar hann var fimmtán ára í London og beið eftir áritun frá breska poppbandinu Five Star í þrjá klukkutíma. „Ég sveif út úr plötubúðinni á bleiku skýi.“

Páll segir að áritanirnar séu einfaldlega hluti af því að hann komist í jólaskapið og þá sérstaklega að hitta smáfólkið. „Ég botna ekkert í því hvað lítil börn tengja við 41 árs gamlan homma með grátt í vöngum. En ef lögin eru grípandi og textarnir skýrir þá má aldrei gleyma því að börn eru músíkölsk. Ég kunni sjálfur alla Abba-texta utan að sem krakki.“ - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×