Lífið

Kanye daðrar við Kim

skotin Vel fór á með Kim Kardashian og Kanye West í veislu fyrir stuttu.
skotin Vel fór á með Kim Kardashian og Kanye West í veislu fyrir stuttu.
Hin nýfráskilda Kim Kardashian átti gott kvöld með rapparanum Kanye West eftir eina tónleika þess síðarnefnda ef marka má frásögn The New York Daily News. Rapparinn hélt veislu eftir tónleika sína í Los Angeles og var Kardashian á meðal gesta þar.

„Kanye sveimaði eins og köttur í kringum heitan graut þegar Kim kom inn í herbergið. Hann var stanslaust að snerta hana og hefði líklega gefið henni koss ef færra fólk hefði verið í veislunni,“ var haft eftir sjónarvotti. Kardashian var einnig orðuð við West skömmu áður en hún kynntist eiginmanninum fyrrverandi, Kris Humphries.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×