Valsmenn tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleiknum fjórða árið röð eftir 33-31 sigur á Fram eftir framlengingu í undanúrslitaleik liðanna í Eimskipsbikar karla í Vodafonehöllinni í dag. Staðan var 25-25 eftir venjulegan leiktíma. Valsmenn voru þremur mörkum undir um miðja seinni hálfeiks en komu til baka og náðu síðan fjögurra marka forskoti í framlenginunni.
Þetta verður tólfti bikarúrslitaleikur Valsmanna frá upphafi en þeir unnu bikarinn 2008 og 2009 og fengu svo silfur eftir tap fyrir Haukum í úrslitaleiknum í fyrra.
Valdimar Fannar Þórsson skoraði átta mörk fyrir Val, Ernir Hrafn Arnarson var með 7 mörk og Sturla Ásgeirsson skoraði 6 mörk. Andri Berg Haraldsson og Einar Rafn Eiðsson skoruðu 6 mörk fyrir Fram.
Valsmenn skoruðu fyrsta markið í leiknum en komust síðan ekki aftur yfir fyrr en í lok leiksins. Fram komst í 3-1, 7-4 og 9-6 en Valsmenn náðu að minnka muninn í eitt mark, 12-13, fyrir hálfleik.
Valsmenn skoruðu fyrsta mark seinni hálfleiks og jöfnuðu metin í 13-13 en Fram komst aftur yfir og náði síðan þriggja marka forskoti um miðjan hálfleikinn, 21-18.
Valsliðið gafst ekki upp, skoraði þrjú mörk í röð og jafnaði leikinn í 22-22 en Valdimar Þórsson fór á kostum á þessum kafla. Ingvar Kristinn Guðmundsson átti líka mjög flotta innkomu í markið í lok seinni hálfleiks.
Valsmenn komust síðan yfir í 25-24 mínútu fyrir leikslok með marki frá Jóni Björgvini Péturssyni en Einar Rafn Eiðsson jafnaði leikinn tíu sekúndum fyrir leikslok og tryggði Fram framlengingu.
Valsmenn tóku síðan öll völd í fyrri hluta framlengingunnar sem þeir unnu 5-1 og voru því 30-26 yfir við lok hennar. Valsmenn misstu bæði Orra Frey Gíslason og Markús Mána Michaelsson útaf með rautt spjald í framlengingunni. Framarar minnkuðu muninn niður í tvö mörk en komust ekki nær.
Úrslitleikurinn fer fram 26. febrúar en Valsmenn mæta annaðhvort Akureyri eða FH í úrslitaleiknum en undanúrslitaleikur þeirra fer fram í Höllinni á Akureyri á morgun.
Valsmenn í bikarúrslitaleikinn fjórða árið í röð
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
