Andre Villas-Boas, stjóri Chelsea, sagði eftir tap sinna manna fyrir Napoli í Meistaradeild Evrópu í kvöld að varnarleikur liðsins hefði verið slakur.
„Við hefðum átt að verjast betur. Napoli refsar manni hiklaust fyrir mistök í líkingu við þau sem við gerðum í kvöld," sagði Villas-Boas.
Napoli heldur nú með tveggja marka forystu fyrir seinni leik liðanna í Lundúnum. „Það er erfitt að koma til baka eftir 3-1 tap í fyrri leiknum en ekki ómögulegt. Sérstaklega þar sem okkur tekst alltaf að skapa okkur mikið af færum."
„Nú eru 90 mínútur liðnar af þessu einvígi en við höfum enn 90 mínútur til að snúa þessu okkur í hag."
Villas-Boas: Hefðum átt að verjast betur
Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Mest lesið

Ronaldo segir þessum kafla lokið
Fótbolti


Niðurbrotinn Klopp í sjokki
Enski boltinn

Þeir bestu (4. sæti): Sigurvegarinn
Íslenski boltinn




Daníel Guðni tekur við karlaliði Keflavíkur
Körfubolti

